VG v.s AGS

http://visir.is/article/20091207/VIDSKIPTI06/818125055

Það eru margir á Alþingi þá sérstaklega VG fólk sem er algjörlega á móti AGS.

Það er uppi áætlanir að eyða 20milljörðum í Sparisjóðana. Þar af 10milljarnað í Byr. En AGS vill þessa þvælu ekki og segir að þetta sé óábyrgð meðferð á skattfé.

Ég er algjörelga sammála sérstaklega fyrir þá staðreynd að stofjáreigendur Byrs greiddu sjálfum sér 13,5 milljarða arð árið 2008. Og það er ekki víst að þessir 10milljarðar dugi til þess að reisa Byr við.

20 milljarðar er ekkert smá peningur. Hækkanir á bensín, sígarettur og afengi a að skila 2 milljörðum í kassann.

Ég segi að það er fínt að hafa AGS hérna. Því ef ekki þá hefði Steingrímur J líklega sólundað þessu féi inní Sparisjóðina. Því þetta samrýmist þeirra hugsjón "að hafa litla Sparisjóði hingað og þangað í smásveitum sem þjóna sínu nærsamfélagi". En staðreyndin er að Sparisjóðirnir vour löngu hætti að gera þetta og tóku bullandi þátt í góðærisvitleysunni og settur allann sinn pening í Exista.


VG og skattarnir.

Vinstri grænir í borginni vilja hækka útsvarið (skattar til sveitafélagana)svo það þarf ekki að skera niður hjá leikskólum. Það á að stitta eitthvað opnunartímann svo nokkrir foreldrar þurfa að vista barnið sitt hjá dagmömmu. VG finnst ósanngjarnt að auknar birgðar eiga að leggjast á barnfólk og þetta er mismunun á skattborgurum. VG vill frekar hækka skatta svo allir í Reykjavík eiga að borga undir barnafólk.

Er það frekar sanngjarnt að við öll sem búum í Reykjavík eigum að borga dagmömmuvist fyrir útvalda einstaklinga? Er það ekki misnunun eða a.m.k ósanngjarnt.

Ætli þetta sé ekki VG í hnotskurn. Í staðinn fyrir að skera niður þá vilja þeir keyra skattana í botn.


Árni Páll.

Árni Páll var á útvarpi sögu í morgun. Kvótakerfið bar á góma.

Arnþrúður Karlsdóttir: Verður kvótakerfið fyrnt einsog segir í stjórnarsáttmálanum.

Árni Páll: Já það verður gert. Guðbjartur Hansesson er í formensku í nefndinni og það verður stefnt að þessu næsta haust.

Arnþrúður Karlsdóttir: En hvað með LÍÚ og önnur hagsmunarsamtök.

Árni Páll: Við látum ekki hagsmunarsamtök þó að þau eru öflug ganga gegn vilja þjóðarinnar.

Arnþrúður Karlsdóttir: En það hefur verið þannig seinustu ár.

Árni Páll: Já. En ekki lengur.

.

.

Ég þakka Árna Pál fyrir. Klárlega besti ráðherra í ríkisstjórninni.


ESB umræðan

Hvað er þetta með að Heimsýnar fólk er að segja að ESB vill fá Ísalndi inn vegna þess að þá fá þeir aðgang að norðurheimskautinu. Þegar norðurheimskautið bráðnar þá opnast siglingaleið sem ESB lönd geta notað.

Ég veit að það er ekki verið að tala um olíuna sem enginn vildi bjóða uppí. Vegna þess að ESB hrifsa ekki auðlindir af þjóðum.

Vilja Íslendingar eiga einkarétt á norðurheimskautinu? Ég ímynda mér að í framtíðinni þegar þessi siglingaleið opnast mun það skapa atvinnu á nokkrum hafnabæjum. Skipin stoppa við á Siglufirði og affarma og fylla olíu á skipin og skipverjar taka kannski 1-2 nætu pásu með tilheyrandi neyslu. Þetta mun skapa einvherjar tekjur og mun vera þýðingarmikið fyrir lítil bæjarfélög.

En Heimsýnarfólk vilja þetta ekki. Þeir vilja bara eigna sér Norðurheimskautið svo að það komi engin skip í okkar lögsögu. Við ætlum bara að sitja á gullinu því annars taka útlendingar það frá okkur????

Er ekki best að fá sem flesta í gegnum Norðurheimskautið? Er ekki fínt að fá þessi ESB lönd í gegn og stunda við okkur viðskipti? Eða á þetta að vera einkaklúbbur Íslands, Noreigs, Kanada og fleirri sem eru svo cool að hafa ekki gegnið í ESB?


Leiðin útur kreppunni.

 Dr Ingjaldur Hannibalsson viðskitpafræðingur fór með fyrirlestur í Turku Finnlandi fyrir nokkrum vikum síðan. Han var að tala um stöðu Íslands í dag og hvernig við getum komið okkur uppúr þessari stöðu. Almenningur, embættismenn og þingmenn keppast að koma með töfralausnir útúr kreppunni. En þarf lausnins að vera flókin töfralausn. Er leiðin útur kreppinni ekki bara þetta klassiska. Ekkert flólkið þar á ferð. Það verða margir fyrir vonbrigðum. Þeir sem eru að vonast eftir hókus pókus leið.

Seinasta glæran hans hljómaði svona.

Export more

Import less

Pay depts

Work smarter and longer for less pay


Steingrímur og skatturinn.

Steingrímur J Sigfússon er að hækka VSK-inn. Hann fer uppí 25%. Í rauninni kom ég með þá hugmynd á seinasta ári. Að hækka VSK-inn í 25%. Þessi tala er mjög praktísk. Einn fjórði. Ég held að þetta spara fyrirtækjum viðskiptakostnað.

Matvörur verða í 7% en matur í veitingahúsum verður 14%. Ég hef miklar efasemndir um þennan mismun. Ég skil það sem Steingrímur er að reyna að fara. Þú ert að kaupa þjónustu þegar þú ferð á veitingahús. Að kaupa sér kjöt í Bónus er allt öðrvísi en að panta sér risa steik á Argentínu Steikhús. En þetta er ekki alltaf svona augljóst. Ef maður kaupir sér snúð í bakarí og fer með hann heimtil sín þá borgar 14% VSK. En ef maður kaupir sér snúð í 10-11 þá borgar maður 7%. Þetta á einnig við brauð frá bakarí og útí búð.

Er þetta sanngjarnt. Vill Steingrímur hygla Högum en níðast á bakaranum á horninu? Ég veit að Steingrímur vill það alls ekki. En þetta er því miður staðreind. Steingrímur er í vandræðum. Ég legg til að hækka einfaldlega matarskattinn í 14% því annað er ósanngjarnt.

Önnur dæmi:

Ég kaupi mér Sóma samloku í Nóatúni og borga 7% en síðan kaupi ég Sóma samloku í mötuneytinu í Þjóðarbókhlöðu og borga 14% VSK.

Ég fer í hádegishlaðborð á veitingastað og fæ með súpu. Borga 14% VSK. Síðan fer ég í 10-11 og fæ mér súpu þar og bora á staðnum og borga 7% VSK.

Ég kaupi mér pulsu með kartöflusalati á N1 og borga 14% en ég kaupi fimm stk pulsupakka í leiðinni sem ég næ í kælinum og borga 7% af þeim pulsum. Og ég er ennþá svangur og vill meiri pulsu og fer í Tíu ellefu á "pulsubarinn" þar sem ég græja mína eigin pulsu og borga 14%. Eða er þessar pulsur í 7% VSK-þrepinu?????


allt davíð að kenna

Samkvæmt nýrri bók eftir Styrmi fyrverandi ritstjóra morgunblaðsnins þá kemur fram að Davíð hafi séð hrunið fyrir löngu áður en það gerðist. Hann var nýbúinn að taka við Seðlabankastarfinu og vissi þá að við Íslendingar mundum lenda í bankakreppu.
Ef þetta er rétt. Af hverju tók hann við ástarbréfum bankana með veð í skuldabréf bankana árið 2008 þegar staða bankana var orðin mjög slæm.
300milljarða gjaldþrot takk fyrir það Dabbi minn.

Innflutt grænmeti.

Image000

 Ég smellti þessa mynd í Krónunni í dag. Ég gerði það vegna þess að mér blöskraði allt þetta innflutta grænmeti. 

Laukur frá Kína, Tómatnar frá Hollandi, papríka frá Fraklklandi og Spáni.

Það gengur ekki að eyða gjaldeyri í þessar vörur meðan garðyrkjubændur hérna á Íslandi geta auðveldlega framleitt þetta sjálfir. Bara ef þeir meiga kaupa rafmagnið á svipuðu verði og álfyrirtækin.

Það er alltaf verið að tala um að álfyrirtækin skapa gjaldeyristekjur. Þeir fá líka orkuna "gefins". Ef bændur fá það líka þá geta þeir skapað/sparað okkur gjaldeyristekjur. 


Það er eitthvað við þennan dúddara.

mynd

Guðmundur Franklín Jónsson.

Þessi drengur er nýkominn til Íslands. Hann rak hótel í Prag í mörg ár og er nú snúinn aftur til Íslands. Hann kom í Silfur Egils og sagðist ætla að stofna fyrirtæki á Íslandi og framleiða eitthvað. Afla gjaldeyristkekjur fyrir Ísland. Hjálpa Íslandi.

En hvað gerir hann svo? Sækir um opinbert starf sem forstöðumaður Bankasýslu ríkisins. Er það bjargvætturinn sem við vorum að bíða eftir?? Koma frá Prag til þess að næla sér í þægilega innivinnu á ríkisspenanum.

Ég er ekkert á móti því. Það er alveg gott mál. Bara ef hann hefði þá sleppt að koma í Silfur Egils og Útvarp Sögu og berja í brjóstið sitt hreykinn.

En hvað er hann að brasa við núna??  Jújú hann er að reyna að kaupa einokunarfyrirtæki á Íslandi. Hagar.

Bjargvætturinn????

 


Hvað er hann að gera á þing?

Ásmundur Daði Einarsson.

Yngsti þingmaðurinn. En hvað hefur hann fram á að bjóða?  Mér sýnist að hann hefur einfaldlega ekkert fram á að bjóða nema það að vera á móti ESB.

Hann hefur aldrei opnað munninn á sér á þingi nema þegar hann er að mótmæla ESB. Er þetta maður sem maður vill hafa á þingi? Er ekki betra að hafa mann sem hefur eitthvað fram að færa nema að vera á móti aðild að ESB.

Núna var hann gerður að formanni Heimssýnar sem eru samtök sem berjast gegn aðild. Þar á hann heima. Ég hvet hann að segja af sér þingmennsku og einbeita sér að þessu baráttumáli hans innan Heimssýnar. Ekki alþingi Íslendinga sem eiga að snúa sér að endurreisn.

Hvað er hann að gera á þingi? Hvað segja kjósendur VG í hans kjördæmi?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Haukur

Höfundur

Hawk
Hawk

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...ory2_957256
  • ...raph_957255
  • ...rvehistory2
  • ...peakgraph
  • Image000

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 330

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband