12.5.2008 | 00:09
Framsókn.... og efnahagsvandinn
Efnahagsmálin eru búin að vera mikið í umræðunni seinustu mánuði og þá aðalega á neikvæðum nótum. En sá flokkur sem er hvað mest að gagngrýna stjórnvöld um efnahagsvandann er sá flokkur sem á síst efni á því. Siv og Guðni þá sérstaklega Guðni eru að hrauna yfir ríkisstjórnina og þá sérstaklega Samfylkinguna um að hafa klúðrað efnahaginum á Íslandi. Guðni notar hvert tækifær til að minna okkur á að það sé mikil verðbólga, húsnæðin að lækka, stýrivextir háir, hátt bensínverð, bitnar á þeim sem hafa hvað minnst á milli handanna og svo framveigis.... bara þetta venjulega. Ágætis formúla hjá kallininum til að redda sér smá atkvæði hjá almúganum en guð minn góður hvað þetta er mikil mótsögn. Það er Framsóknarflokkurinn sem er búinn að klúðra efnahaginum á Íslandi og ef ég væri í Framsóknarflokkinum þá mundi ég fela mig úti horni og vonast til þess að enginn færi uppá púlt að minnast á efnahagsmálin og þar af leiðandi aldrei tala um efnahagin að fyrra bragði.
Það er eyðslufyllerí hjá Framsókn og Sjálfstæðisflokknum sem hafa komið okkur í þessa þynnku sem við erum í núna. Þá er ég að tala um Kárahnjúka og þessi blessuðu húsnæðislánin. Kárahnjúkar var til þess að það streymdi endalaust mikið að erlendu fjármagni inn í landi og í raunni var bara örlögin á einn veg... what goes up must go down. Íbúðarlánasjóður fékk leyfi til að lána allt að 80% fyrir húsnæði á 4,15% vöxtum og bankarnir fylgdu í kjölfarið og það var á tímabili sem bankarnir voru að auglýsa 100% lán. Það stukku flest allir Íslendingar á þennan "fría" pening (meða annars ég :) og keyptu sér nýja íbúð eða endurfjármagnaði gömlu lánin. Þetta skinndilega peningaflæði um göturnar á Íslandi varð til þess að Íslendingarnir misstu sig. Guðmundur Ólafsson hagfræðingur og lektor á Bifröst segir að þetta húsnæðislánabull hafði miklu meiri þennsluáhrif en Kárahnjúkar allt í boði Framsókn enda voru þeir búin að lofa í gegnum sjónvarpsauglýsingar að gera þetta mögulegt og græddu mörg atkvæði á því og þess vegna keyrðu Framsókn þetta húsnæðisbull hratt og örugglega í gegn. Nú erum við að súpa seiðið á þessu eyðslusemi. Hagsveiflur fara einfaldlega upp og niður... því meira sem hún fer upp því lengra fer hún niður. Þess vegna gerir Seðlabankinn allt til þess að halda stöðuleika.... sem er ekki alveg að ganga hjá þeim. Hagkerfið er bara þannig að áhrif af aðgerðum koma ekki fram fyrr en miklu seinna. T.d ef stýrivextir eru hækkaðir þá bíta þeir ekki daginn eftir. Þeir byrja að bíta eftir svona 6-8 mánuði. Sama má segja um hagsveiflur.... eyðslufylleríið meðan Framsókn var við stjórn er að bitna á okkur núna. Það er ekkert sem núverandi stjórn hefði getað gert til þess að afstýra þessu. Ríkisstjórnin voru aðiens búin að vera við völd í sex mánuði þegar Framsókn byrjaði að skjóta á hana. Framsókn á enganveginn efni á að tala um efnahagsmálin þeir eru búin að klúðra þeim rétti ... því miður. Nýja ríkisstjórnin tók bara við sökkvandi skipi það er ekkert flóknari en það. Að kenna Samfylkingunni um efnhagasmálin er svona svipað og skipstjóri Titanic klessir á ísjaka og dettur fyrir borð og aðstoðarskiptstjórinn tekur við og skipið er að sökkva og það er kennt aðstoðarskipstjóranum fyrir að sökkva skipinu. Þegar efnahagsmálin bera næst á góma þá er best fyrir Framsókn að þegja.....svona rétt einsog MR Bean.
Um bloggið
Haukur
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 465
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Saga Framsóknarflokksins,hefir ætíð verið gegnsýrð af spillingu.Framsóknarflokkurinn hefir ætíð verið opinn í báða enda.
Ég spái því að þessi öldungur sem Framsóknarflokkurinn er fari brátt að gefa upp öndina,það má sjá á því hvernig öfl
innan hans eru að berjast::Guðna armur Halldórs armur. það kæmi ekki á óvart að hermdarvekamaðurinn
Finnur Don Corleone Ingólfsson slátri honum endanlega með einhverri afskiptasemi,það væri vel.
jensen (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 00:26
Framsókn og Co lofuðu 90% húsnæðisláni. Veiddu mörg atkvæði út á það.
Fór um mig mikill kjánahrollur þegar Guðni Ágústsson var að krefjast afsagnar ríkisstjórnar á alþingi vegna efnahagsástandsins. "Ríkisstjórnin skal fara frá"...........En kom hann með lausnir á vandanum ? NEI, hann er duglegur að drulla yfir hingað og þangað en kemur ekki með hugmyndir um hvernig skal laga vandann. Stjórnmálamenn sem er ekk sleggjunnar að skapi
ingz (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 11:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.