Færsluflokkur: Dægurmál

Það sem af er!!!!!!! Haukur krifjar þingið.

Haukur með puttan á púlsinum við alþingi: Hverjir hafa verið bestir hingað til?

 1. Birgitta Jónsdóttir

Hún hefur komið mest á óvart að mínu mati. Staðið sig vel í fjölmiðlun og talar máli almennings og gelimir ekki stefnu flokksins. Hún heldur út dagbók í DV þar sem hún upplýsir almenning um hvað er í raun og veru verið að tala um á Alþingi. Hún skúbbaði t.d tal um "Framsóknarherbergið" í Alþingishúsinu. Hún hét því að opna glugga Alþingis fyrir almenningi og hefur staðið við það.

 2. Sigmundur Davíð

Hann og Birgitta eiga vinningin en vegna þess að Birgitta kom svona skemmtilega á óvart þá fær hún fyrsta sætið. Sigmundur er harðbeittur stjórnmálamaður þrátt fyrir að hafa aldrei snert stjórnmál fyrr en nýlaega. Hann er þrælgáfaður hagfræðingur með doktorsgráðu í skipulagshagfræði. Andstæðingar hans hræðast hann. Þeir eru hræddir við yfirburðr hans af þekkingu og mælsku. Ef allir þingmenn væru á hans kaliber þá væri Ísland ekki í þessari vitleysu. Burt með jarðfræðingana, stjórnmálafræðingana, kennarana, dýralæknana og flugfreyjurnar.

Þór Saari 3. Þór Saari.

Snjall hagfræðingur. Hann hefur komið sterkur inn. "það á að viðurkenna Icesave sem svikamillu og fara til Bretlands og segja við þá hjálpið okkur að finna þessa peninga og þið megið eiga hverju einustu krónu" þetta sagdi Þór Saari um Icesave. Er þetta fráleitt? Ef það hefði haldið rétt á spilunum frá byrjun þá væri þetta mögulegt. Allavega er hann að koma með hugmyndir og bara ef allir þingmenn væri svona hugmyndaríkir þá væri Alþingi betri staður til að vera.

Það er ótrúlegt að það er einungis bit á nýjustu þingmönnunum..... dofnar líðræðisandinn eftir þingsetu?

Þeir sem hafa staðið sig verst

 Steingrímur J.

Hættu að kenna öllum örðum en sjálfum þér um mistök. Það er ótrúlegt hvað hann nær að snúa út úr gagnrýni á sig og skyndilega erum við komin aftur mörg ár aftur í tíma og Davíð Oddson er við stjórnvölin og það er verið að einkavæða bankana. Hann sagði í viðtali fyrir nokkrum vikum/mánuðum síðan að "við eigum von á glæsilegri niðurstöðu í Icesave". Þetta er mjög óábyrgt að koma með þessar yfirlýsinar. Það átti að fá sprenglærðan einstakling með reynslu í banka og fjármálum og starfsreynslu erlendis og þekkingu á utanríkismálum til að semja fyrir okkur Icesave. Það átti að setja okkar bestu menn í þetta ég nefni Ólaf Arnason til dæmis og fleirri. Nóbb Steingrímur segir "nei setjum Svavar Gestsson í þetta. hann er félagi minn og er flottur, sveitalegur og rauðhærður einsog ég. Ég fíla ekki jakkafataklædda menn því ég er jarðfræðingur og vill láta Svavar Gestsson fara á móti háköllunum í U.K"

 Sigmundur Ernir.

Hann hefur ekki gert neitt af sér beint frekar en aðrir þingmenn. Eg bjóst bara mikið við af honum þess vegna er hann vonbrigði. Þegar hann var að tala um að það væri fínt að færa frídaga um helgar vegna þess að það er svo óþægilegt að fá frí í miðri viku. Færa uppstigningadag og hvítasunnu þannig að það verða langar helgar. Einnig á að taka upp anna tíma á sumrin þannig að klukkan er flýtt um tvo tíma þannig að maður getur grillað úti í sólinni klukkan sjö þvi í raun er klukkan þá fimm.

Þegar hann var að tala um þetta í fréttum þá ætlaði ég ekki að trúa mínum eigin eyrum að kallinn getur látið þetta útur sér meðan Ísland brennur.

Margrét Tryggvadóttir.

Fellur algjörlega í skugga á hinum þrem þingmönnum Borgarahreifingarnar. Kannski er það þess vegna að maður finnst ekkert var í hana... vegna þess að í samanburði við hina þá er hún ekkert spes. Hún kemur frá X-O sem voru með miklar yfirlýsingar og ber þeim skilda að láta heyra í sér.

f75d98de539569ef

Facebook ekki tekið með.

 


Icesave.

Íslendingar taka á sig 650milljarða vega Icesave. Við fáum lán fyrir þessu. Þetta er sirka tvær milljón á mann. Átta milljónir á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Þá ég ég eingöngu að tala um höfuðstólinn vextirnir koma síðan ofan á það. Það sem mér finnst versta við þetta lán er hvað það eru háir vextir á þessu. Þetta er í pundum og evru þar sem vextir eru í kringum 0%. Hvar koma þessi 5,5% þá? Þá að það eru háir vextir hérna innanlands þá hljóma 5,5% vextir ekkert mikið en vextirnir eru mjög hári að mínu leyti. Síðan er verið að segja að þetta er góður samningur vegna þess að við þurfum ekki að byrja að borga af láninu fyrr en eftir 7ár. Það þíðir bara vextir og vaxtavextir og vaxta vaxtavextir. Ég tók 500þúsund króna bílalán fyrir nokkrum árum. Það voru í kringum 5% vextir á því láni og ég byrjaði að borga niður lánið strax frá fyrsta degi. Samt fannst mér ég vera að borga alltof mikið í vextir. Ég get ekki ímyndað mér hvað höfuðstóllin mundi verða ef ég hefði látið lánið safna vöxtum fyrst í 7 ár og síðan byrjað að borga af því.  


Steingrímur, SA og ASÍ

Steingrimur_J.jpg

Steingrímur finnst leiðinlegt að stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans komi í veg fyrir þjóðarsátt á milli aðila vinnumarkaðarins. Honum finnst það miður og hann segir að ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins hafa haft gott samstarf uppá síðkastið. Þeir hafa rætt málin og talað um kreppuna í rólegheitum.

Ef Steingrímur kallar það að spjalla saman mikinn árangur þá þarf hann að stilla klukkuna sína.  

 


Eminem og Bruno

Eminem lenti í miður skemmtilegu atviki á MTV Awards. Bruno sem er karekter hjá sama leikara og lék Borat.

Orðiði á götunni er að Brono valdi Eminem til að droppa á er vegna lagsins "Bad pipes from Bagdad"


Bad move.

Soffanías Cecilsson hf er útgerðarfyrirtæki. Framkvæmdastjórinn tók þriggja milljarða króna lán hjá  Landsbankanum í svissneskum frönkum og japönskum jenum og fjárfesti í hlutabréfum í Landsbankanum og peningamarkaðssjóði Landsbankans í mars 2007. Nú eru hlutabréfin verðlaus og lánið er komið uppí 10 milljarða.

Ef þessi útvegsfyrirtæki hafa hagað sér með þessum hætti þá vorkenni ég þeim ekkert að þau eru að verða gjaldþrota. Þetta er mjög óábyrgt að veðsetja fyrirtækið með þessum hætti til þess að stunda áhættufjárfestingar. 

 

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/05/31/milljarda_skuldir_umfram_eignir/?ref=fpmestlesid


Auglýsingar í fréttum á Stöð 2

 

Það kom "frétt" á stöð tvö að brugghúsið Mjöður ehf er að brugga bjór. Hann bruggar Jökul sem er til sölu í Vínbúðunum í landinu. Það kom í frettum að Íslendingar hafa tekið vel í bjórinn og það er að koma nýr bjór frá þeim sem kallast Skriðjökull og hann er toppbjór líka.

Af hverju er þetta frétt? Það er bannað að auglýsa bjór en það má kynna áfengi og þetta var bara kynning. Borgaði Mjöður ehf fyrir þessa frétt? Eða er fréttarmaðurinn tengdur þessu fyrirtæki sem hann er að koma á framfæri. Eða er þetta bara hörkufrétt fyrir almenning og ekkert býr að baki.

Síðan eftir þessa fyrirtækjafrétt kom önnur frétt um fyrirtæki sem kallar sig Clara. Þetta er netfyrirtæki sem fylgist með umræður á netinu og fleirra. Í lok fréttinnar spyr fréttamaðurinn "hvernig fyrirtæki geta nýtt sér þessa þjónustu". Svona rétt til að picha þetta fyrirtæki fyrir öllum Íslendingum sem eru að horfa.

Það er þekkt að fyrirtæki borga fyrir umfjöllun í Frjálsri verslun og ýmsum blöðum t.d Studentablaðinu. Einnig er hægt að borga fyrir pláss á Útvarp Sögu. Þetta var mikið notað fyrir kosningar þegar frambjóðendur borguðu fyrir viðtal á Útvarp Sögu. Viðtalið kostaði um 50þúsund kall.


Tónlistarhúsið

Maður er orðinn svo blindur á tölur að maður fattar ekkert þessa milljarða. Ríkið mun græða 4,2 milljarða á ári vegna skattahækkana á bensín, áfengi og tóbak. Skuldir Hannesar Smárasonar nema 45 milljarðar, Robert Tchenguiz fékk 107 milljarða yfirdrátt hjá Kaupþing rétt fyrir fall bankans.

Það mun kosta 20milljarða að halda áfram að byggja Tónlistarhúsið í Reykjavík. Ég finn fyrir þessum nýju sköttum. Þegar maður fer í ríkið eða fyllir á bílinn þá finnur maður fyrir smá blóðtöku. En þetta skilar einungis 4,2milljörðum á ári og á sama tíma erum við að halda áfram með Tónlistarhúsið sem kostar 20milljarða. Þessar nýju skattahækkani ná rétt rúmlega 1/5 af kostnað Tónlistarhúsins.

Við eigum ekkert efni á þessu húsi. Þegar kostnaðurinn við að byggja þetta er afgreiddur og þá þarf að reka þetta hús. Það mun kosta eihverja tugi milljóna á mánuði. Við eigum bara að sleppa þessu húsi, hafa þetta bara sem minnisvarða um tímann sem var. Minnisvarði um bjartsýni Íslands. Minnisvarði um góðaræstímann. 

Við getum auglýst kreppuferðir erlendis "come and visit Iceland, once a rich country but now broke". Í staðinn fyrir gullna hringinn þá fara ferðamenn í kreppu hringinn. Byrjað á að skoða alla háflbyggðu blokkirnar og tómu hverfin. Síðan er farið uppá land að skoða stóru tómu sumarbústaðina. Síðan er ferðin heitið í Krepputorg sem er hálf tóm og tómri Bauhaus verslunina sem hætti við að hefja rekstur. Síðan verður farið í turnin í Kópavogi og Höfðatorg að skoða tómu skrifstofuhúsnæðin. Og ferðin endar á því að túristarnir fá að skoða sig um í rústum tónlistarhúsins þar sem draumurinn um fjármálamiðstöð heimsins hvarf. 


Start

http://www.n1.is/start

Ég sá auglýsingu í Fréttablaðinu í dag. Þar var verið að auglýsa einhvern hugmyndabanka.

"Á Start 09 hittist hugmyndaríkt fólk, hlustar á áhugaverð erindi og myndar ný tengsl. Markmiðið er að hvetja frumkvöðla til dáða og auka sköpunargleði þjóðarinnar"

Með þessari auglýsingu eru gámar við bryggju þar er ritað á þá orð. Þá skýtur doldið skökku við að á myndinni er einungis 3 orð þ.e hugmyndir, ál og fiskur.

Aluminum, Hugmyndir, Fiskur, Aluminum, Hugmyndir, Fiskur,Aluminum, Hugmyndir, Fiskur,Aluminum, Hugmyndir, Fiskur,Aluminum, Hugmyndir, Fiskur,Aluminum, Hugmyndir, Fiskur,Aluminum, Hugmyndir, Fiskur,Aluminum, Hugmyndir, Fiskur,Aluminum, Hugmyndir, Fiskur,Aluminum, Hugmyndir, Fiskur,Aluminum, Hugmyndir, Fiskur.

Er þetta þessi sköpunargleði sem við þurufum á að halda??


ags

Það er mikill misskilningur að halda að AGS sé að hjálpa Íslendingum. Sjóðurinn er einungis að gæta hagsmuni erlenda kröfuhafa. Hann kemur hingað til lands og skiptir sér af fjármálum hins opinbera. AGS er alveg sama um velferðarkerfið á Íslandi. Alveg sama um heilbrigðiskerfið eða menntakerfið. Markmið AGS er að kreista öllum peningasafa úr Íslandi og skiptir engu máli að landið standi blóðlaust eftir á.

Þetta kemur glöggt fram þegar maður les tilkynningu frá AGS.  „Ísland stendur undir skuldum“. Þetta er fyrirsögnin.


Þetta er byrjað

Jæja núna eru þessar skattahækkanir byrjaðar. Áfengi og tópak hækkuðu um 15% í dag. 10kr gjald á hvern lítra á bensín. Þetta á að skila ríkinu 5 milljarða í kassann á ári. En er það rétt? Mun fólk ekki bara keyra minna, brugga landa og smygla tópak til landsins?

Það er ekkert smá sem ríkið er að tækla áfengisgjaldið. Þeir hækkuðu það nú bara fyrir nokkrum mánuðum. En ríkisstjórnin tækla þessa skatta fyrst vegna þess að það er svo auðvelt að rökstiðja þessi gjöld. Það er svo erfitt að vera á móti þessum hækkunum vegna þess að áfengi og tópak er óhollt fyrir mann og bensínið mengar. Pólítisska réttlætið er hér í hávegum höf. Að sjálfsögðu það mun ekki breytast.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Haukur

Höfundur

Hawk
Hawk

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...ory2_957256
  • ...raph_957255
  • ...rvehistory2
  • ...peakgraph
  • Image000

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband